Á lífsleiðinni getum við öll haft gott af því að ræða það sem máli skiptir við óháðan aðila. Í viðtalsmeðferð gefst tækifæri á að hægja aðeins ferðina, gefa því athygli sem hvílir á okkur og öðlast betri skilning á sjálfum okkur og öðrum. Sem dæmi um vanda sem ég hef aðstoðað fólk að vinna úr eru kvíði og áhyggjur, langvarandi streita, depurð, einsemd, pirringur og sambandserfiðleikar. Einnig hef ég mikla reynslu af því að aðstoða fólk að vinna úr gömlum áföllum, erfiðleikum úr æsku og flóknum fjölskyldusamskiptum.
Eitt af því sem ég hef sérstakan áhuga á er að aðstoða fólk sem hefur tilhneigingu til meðvirkni og að vanrækja eigin þarfir. Þessari tilhneigingu fylgir oft kvíði, sektarkennd, depurð og gremja yfir því að fá ekki sömu tillitssemi til baka frá öðrum. Jafnframt því getur fólk upplifað mikla þreytu og bugun, þar sem hlutverk þess sem sífellt sinnir öðrum getur verið meira krefjandi en venjuleg manneskja veldur.
Ég get tekið við nýjum skjólstæðingum búsettum á Íslandi sem og erlendis, þar sem öll viðtöl fara fram í gegnum fjarfundi. Hafðu samband hér fyrir frekari upplýsingar um hvernig ég vinn og til að bóka fyrsta viðtal.
Um mig
Ég hef verið búsett á Bretlandi síðan 2016 og hef síðan þá unnið á eigin stofu, innan heilbrigðisþjónustu NHS, við London Metropolitan háskólann og hjá samtökum sem sérhæfa sig í áfallameðferð eftir kynbundið ofbeldi. Ég lauk doktorsnámi í ráðgjafarsálfræði (e. counselling psychology) í Bandaríkjunum árið 2014 og er löggiltur sálfræðingur bæði á Bretlandi og á Íslandi.
Í sálfræðimeðferð nýti ég nálganir úr ýmsum áttum, þ.á m. hugræna atferlismeðferð. Ég hef kynnt mér ýmsar meðferðarleiðir og leitast við að mæta hverri manneskju þar sem hún er stödd og að finna í sameiningu hvað gagnast best. Ég hef unnið með fólki með ýmiss konar vanda, t.d. þunglyndi, kvíða, áfallastreitu, sambandsvanda, langvarandi streitu, sjálfsvígshugsanir og fjölskylduerfiðleika. Einnig hef ég unnið með fólki sem vill kynnast sjálfu sér betur, bæta samskipti við aðra og finna leiðir til að lifa betur í takt við eigin gildi og markmið.